Persónuvernd

Gögnin þín eru trúnaðarmál.

Hér er einfalt yfirlit yfir hvaða upplýsingum við söfnum, af hverju og hvernig við förum með þær.

Hvaða upplýsingum söfnum við?

Þegar þú sendir inn bíl söfnum við bílnúmeri, upplýsingum um bílinn (tegund, árgerð, akstur, ástand og myndir), nafni þínu, símanúmeri og netfangi. Á hafðu samband-síðunni söfnum við nafni, netfangi og skilaboðum.

Til hvers notum við upplýsingarnar?

Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að meta bílinn og senda þér tilboð. Við sendum þér staðfestingu og tilboð í tölvupósti og gætum hringt í þig varðandi tilboðið. Við sendum ekki markpóst og deilum ekki upplýsingum með þriðja aðila í markaðsskyni.

Uppfletting bílnúmera

Við flettum bílnúmeri upp í opinberri ökutækjaskrá til að staðfesta grunnupplýsingar um bílinn. Uppflettingar eru takmarkaðar og aðeins í boði á Íslandi.

Vefmælingar

Við mælum nafnlausa notkun á síðunni (t.d. hvaða skref formsins eru kláruð) til að bæta þjónustuna. Engin persónugreinanleg gögn eru skráð í þær mælingar og engar utanaðkomandi mælingarþjónustur eru notaðar.

Geymsla og eyðing

Innsendar upplýsingar eru geymdar á öruggum gagnagrunni og aðeins aðgengilegar starfsfólki sem vinnur úr tilboðum. Þú getur hvenær sem er óskað eftir að upplýsingum um þig sé eytt með því að hafa samband á kaupum@kaupum.is.

Ábyrgðaraðili

ABS ehf., kt. 650522-0360, Háaleitisbraut 12, 108 Reykjavík. Sími 588-0888 · kaupum@kaupum.is.